##Almennt Með persónuverndarstefnu þessari er tiltekið hvernig við meðhöndlum þær persónuupplýsingar sem við geymum um þig og hvaða réttindi þú hefur varðandi þær upplýsingar. Dauðitíminn ehf er eigandi Reiðhjólaskrá.is og Flottföt.is. Stefna okkar er að gæta fyllsta trúnaðar um gögn þín og virða rétt þinn varðandi meðferðar á persónuupplýsingum. Stefna þessi tekur til skráningar, vörslu og vinnslu persónuupplýsinga sem falla undir stefnuna. Persónuverndarstefna þessi er aðgengileg bæði í nýskráningarferli sem og á vefjum í eign Dauðatímans ehf.
Dauðitíminn ehf. Kt. 441119-0620, Stapasíðu 18, 603 Akureyri er ábyrgðaraðili fyrir vinnslu persónuuplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustu og vörur vefja í eigu Dauðatímans ehf. (Flottfot.is og Reidhjolaskra.is)
Hvaða upplýsingum söfnum við og í hvaða tilgangi: Tengiliðaupplýsingar Nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Þessum gögnum er safnað til að geta afhent/sent þér vörur, sent þér tilkynningar vegna vörukaupa og eða þjónustu sem skilgreind er á vefjum okkar, sbr. Stolið hjól fundið og skilaboðum komið til eiganda. Upplýsingar um vörukaup- og/eða þjónustu, svo sem um dagsetningu viðskipta og hvað var keypt. Þetta gerum við til þess að halda utan um kaupsögu og við skil og skipti á vörum. Jafnframt er nauðsynlegt vegna samningssambandsins og til að uppfylla skilyrði skatta- og bókhaldslaga.
Greiðsluupplýsingar. Við og höldum utan um greiðsluupplýsingar og útgefna reikninga sem eru nauðsynlegar vegna samningssambands okkar og til að uppfylla skilyrði skatta- og bókhaldslaga, þegar þú borgar fyrir vöru eða þjónustu.
Tæknileg gögn. Þegar þú heimsækir vefsíður okkar þá söfnum við gögnum sjálfkrafa sem fela í sér upplýsingar eins og IP-tölu, tegund vafra, auðkenni tölvunnar og tölvukerfi. Einnig eru skráðar upplýsingar um að þú tengist vefsíðunni okkar í gegnum hlekk og þá af hvaða vefsíðu, hvernig þú notar vefsíðuna, tíma og dagsetning heimsóknar, þann tíma sem þú varðir á þessum síðum, auk upplýsinga um kaup á vörum og þjónustu. Slíkum upplýsingum kann að vera safnað með notkun vefkaka (e. cookies). Nánar um upplýsingar um vefkökur má finna hér.
Tilgangur vinnslu persónuupplýsinga Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga nýtist m.a. í eftirfarandi tilgangi:
Þessi samskipti gætu átt sér stað í gegnum tölvupóst síma, bréfleiðis eða með SMS. Þú getur alltaf afturkallað samþykki þitt hvenær sem þér hentar til að koma í veg fyrir að við sendum þér efni í markaðstengdum tilgangi í framtíðinni. Þú getur það með því að fara á vefsíðu okkar og afskrá þig, smella á tengil í tölvupósti sem þú hefur fengið frá okkur, sent tölvupóst á personuvernd@dauditiminn.is. Í slíkri beiðni þarf að koma skýrt fram að þú viljir ekki fá sent frá okkur slíkt efni, framvegis. Ekki er víst að afturköllunin taki tafarlaust gildi en við munum reyna að verða við slíkri beiðni eins fljótt og mögulegt er, en tryggjum að slíkt sé lokið innan 30 daga. Ef þú vilt ekki fá markaðstengt efni frá okkur, getum við samt haldið áfram að hafa samband við þig og sent þér nauðsynlegar upplýsingar í tengslum við þjónustu okkar og/eða lögum samkvæmt. Miðlunn til þriðja aðila Þegar greitt er fyrir vörur með greiðslukorti er þér vísað á greiðslusíðu Borgunar. Dauðitíminn ehf geymir ekki greiðslukortaupplýsingar. Við vísum því til Borgunar hvað varðar geymslu kortaupplýsinga.
Öryggi persónuupplýsinga Við viðhöfum viðeigandi öryggisráðstafanir í því skyni að hindra að persónuupplýsingar þínar glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi. Aðgangur að upplýsingunum er auk þess takmarkaður við þá aðila sem nauðsyn ber til og sem eru bundnir trúnaðarskuldbindingu. Við vekjum athygli á því að þú ber ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d. nafni, aldri og mynd, sem þú kýst að deila á almennum vettvangi, t.d. í gegnum spjallrás eða Facebook síður vefsíðna okkar. Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á netinu er aldrei fullkomin öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu. Ef upp kemur öryggisbrestur sem hefur áhrif á persónuupplýsingar munum við tilkynna slíkt til Persónuverndar og eftir atvikum til þín eftir því sem lög mæla fyrir um. Teljir þú að samskipti þín við okkur séu ekki örugg, biðjum við þig um að láta okkur umsvifalaust vita um vandamálið með því að senda póst á netfangið personuvernd@wedo.is Vefsíður okkar eru ætlaðar einstaklingum sem eru í það minnsta orðnir 13 ára. Við krefjumst þess að einstaklingar yngri en 13 ára gefi ekki upp persónuupplýsingar í gegnum síðurnar. Það er stefna okkar að hvorki safna né varðveita persónuupplýsingar um neinn einstakling yngri en 13 ára. Hve lengi eru persónuupplýsingar geymdar? Persónuupplýsingar geymum við aðeins svo lengi sem nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Geymslutími slíkra persónuupplýsinga fer eftir eðli upplýsinganna og þeim lagareglum sem gilda um viðkomandi vinnslu persónuupplýsinga, t.d. skatta- eða bókhaldslöggjafar. Í einstaka tilvikum kann einnig að vera nauðsynlegt að geyma gögn vegna lögmætra hagsmuna , t.d. vegna deilumála.
Réttur þinn Í vissum tilvikum átt þú réttindi samkvæmt persónuverndarlöggjöf í tengslum við vinnslu okkar á persónuupplýsingum. Ef þú vilt neyta þessara réttinda biðjum við þig að hafa samband við okkur og við munum leitast við að svara beiðni þinni eins fljótt og auðið er, en tryggjum að slíkt sé lokið innan 30 daga nema um sé að ræða margar eða umfangsmiklar beiðnir. Við kunnum að óska eftir viðbótarupplýsingum frá þér í tengslum við beiðni þína, t.d. vegna auðkenningar. Við tökum ekki almennt ekki gjald fyrir afhendingu gagna eða afgreiðslu annarra beiðna. Við áskiljum okkur þó rétt á að innheimta gjald eða synja um afhendingu þegar um er að ræða beiðnir sem eru bersýnilega tilhæfulausar, óhóflegar eða margendurteknar. Réttur til aðgangs: Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum um þig og að fá afhent afrit upplýsinganna. Með þeim hætti getur þú fullvissað þig um að upplýsingarnar séu réttar og að vinnsla okkar á þeim sé í samræmi við lög. Réttur til leiðréttingar: Ef einhverjar upplýsingar um þig eru rangar eða ónákvæmar átt þú almennt rétt á að láta okkur leiðrétta þær. Réttur til eyðingar: Í vissum tilvikum getur þú átt rétt á að við eyðum persónuupplýsingum sem við geymum um þig. Þetta á einkum við í þeim tilvikum þar sem upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar, ef þú hefur andmælt vinnslu upplýsinganna (sbr. hér að neðan), ef vinnslan reynist ólögmæt, eða ef vinnslan byggði á samþykki sem þú hefur síðar afturkallað. Við áskiljum okkur þó rétt til að meta í hvert eitt sinn hvort skylt sé að eyða gögnum.
Réttur til að andmæla vinnslu: Ef vinnsla okkar byggir á almannahagsmunum/ lögmætum hagsmunum okkar eða annarra og þú telur að vegna aðstæðna þinna brjóti vinnslan gegn grundvallarréttindum þínum, getur þú andmælt vinnslunni. Ef þú andmælir, hættum við vinnslunni nema við getum bent á ríkari lögmæta hagsmuni af að halda henni áfram. Réttur til takmörkunar á vinnslu: Í eftirtöldum tilvikum átt þú rétt á að við stöðvum vinnslu persónuupplýsinga:
Persónuverndarstefna þessi var samþykkt þann 28.6.2021 Allar breytingar á verða tilkynntar á vefjum Dauðatímans ehf. Hafir þú ábendingu um eitthvað sem má bæta óskum við eftir því að þú sendir okkur póst á netfangið personuvernd@dauditiminn.is